
Úti hvíslar golan er fjórða skáldsaga Lárusar Jóns og kom út í byrjun september 2026. Hér er kafli úr bókinni.
„Sæll, frændi. Þú munt aldrei geta giskað á hvert ég er að fara á morgun,“ sagði Smári og brosti þegar föðurbróðir hans hló í símann, sínum geðþekka og milda hlátri sem hann kunni svo vel við. Eftir að foreldrar hans féllu frá hafði hann tengst frænda sínum nánar og þeir hringdust oft á og spjölluðu um hitt og þetta. Frændi hans hafði ákveðnar skoðanir á málum sem tengdust æðri máttarvöldum en það var þegjandi samkomulag að fara aldrei út í þá sálma. Þess í stað töluðu þeir meira um fortíðina.
„Nú veit ég ekki, Smári minn,“ sagði hann. „Þú varst að vinna í Borgarfirðinum síðast, ertu kannski kominn með verkefni í Dölunum?“
„Nei, en þú ert volgur, farðu dálítið norðar og vestar.“
„Breiðafjarðareyjar eða kannski Barðaströndin?“ Frændi hans hafði gaman af þessum leik. Þeir höfðu áður skemmt sér við þetta því Smári var flinkur, handverk hans spurðist vel út og síðasta ár hafði verið fjölbreytt. Tveir sumarbústaðir í uppsveitum Borgarfjarðar, fjósbygging fyrir norðan og gluggaísetning á bóndabæ á Mýrum.
„Þú ert að hitna en þarft að fara ögn norðar. Þar er einn staður sem þú þekkir betur en ég,“ sagði hann.
„Arnarfjörður, þú ert að fara til Arnarfjarðar,“ sagði frændi hans með gleði í röddinni og svo var eins og rynni upp fyrir honum ljós. „Ekki ertu að fara á Bakka, er það nokkuð?“ Smári skynjaði eftirvæntinguna í málrómnum og ætlaði að treina sér svarið til að stríða honum en stóðst ekki mátið.
„Rétt hjá þér, eins og alltaf.“ Þeir hlógu. Frændinn var yngri bróðir pabba hans og eftir að hann féll frá hafði Smári spurt hann um hitt og þetta frá æskuárum þeirra bræðra því lífið stoppar aldrei og bíður ekki eftir neinum. Smári hafði oft ætlað sér að spyrja föður sinn um ævi hans og æsku en svo var hann allt í einu ekki lengur til frásagnar.
„Þú manst eftir sögunni sem pabbi rifjaði stundum upp síðustu árin sem hann lifði, þessari um hundinn,“ byrjaði hann. Frændi hans greip þráðinn á lofti.
„Hann Lappa. Jú, ég man eftir honum. Þú veist að ég var í bátnum með Gúnda pabba þínum daginn sem við fórum suður.“ Hann hugsaði sig um. „Þetta gerðist allt svo hratt, um morguninn sigldi skipið inn fjörðinn viku fyrr en áætlað var og við urðum að drífa okkur strax. Einhverju vorum við búin að pakka því þetta lá í loftinu en samt, allt var gert í flýti og upp úr hádegi, varla klukkutíma síðar, var búið að ferja okkur yfir í skipið.“ Faðir hans hafði sagt svipaða sögu, þau urðu að skilja eftir óuppteknar kartöflur í garðinum á balanum við sjóinn og gátu ekki tekið nema hluta af búslóðinni. En það sem hafði brennt sig í minni föður hans og fengið hann til að tárast, nokkuð sem Smári hafði aldrei séð til hans áður, voru viðbrögð hundsins.
„Ég man svo vel eftir veðrinu,“ hélt frændi hans áfram. „Síðasta vikan í júlí, sumardagur eins og þeir gerast bestir fyrir vestan, fjörðurinn eins og spegill, fuglasöngur og svo skipsflautan að blása til brottfarar. Pabbi þinn var ómögulegur yfir hundinum, við urðum að skilja Lappa eftir því við vissum ekki hvar við myndum búa fyrir sunnan og hvort hundurinn væri velkominn.“ Hann þagnaði. Smári mundi hve föður hans fannst erfitt að rifja þetta upp. Eitt var að sjá hundinn skilinn eftir, það var nógu sárt en það sem var erfiðast og grætti föður hans síðustu mánuðina sem hann lifði var að Lappi beið á ströndinni, ekki bara þennan dag heldur lengi á eftir.
„Við fréttum ekki fyrr en daginn eftir að við komum suður að Lappi hafði ekki vikið af ströndinni eftir að við sigldum. Reynt var að draga hann burt en hann hljóp alltaf aftur til baka. Einnig var reynt að læsa hann inni en þá gólaði hann svo sárt að gefist var upp og honum hleypt út og þá tók hann strikið niður í fjöru. Að lokum var ákveðið að leyfa honum að syrgja í friði, honum gefinn matur og fylgst með að allt væri í lagi með hann.“ Smári fann að frændi hans komst við að rifja þetta upp.
„En það sem ég skil ekki,“ sagði Smári, „var hvernig þeim tókst að týna honum.“
„Nei, ég skil það ekki heldur,“ sagði frændi hans, „hann hvarf rúmri viku síðar, einhvern tíma í byrjun ágúst. Og það skrýtnasta var að kvöldið áður en hann hvarf heyrðist gól og hávaði neðan af ströndinni en hvorki fannst tangur né tetur af honum daginn eftir. Sem er enn furðulegra af því að það heyrðist ekki bofs í honum þegar við sigldum burt frá honum.“ Aftur þögðu þeir.
„O, jæja. Líklega er vonlítið að reyna en ég ætla samt að spyrjast fyrir þegar ég kem vestur, kannski er eitthvert gamalmenni þarna sem man eitthvað. Sakar ekki að prófa.“
„Já, endilega prófaðu, Smári minn. Og láttu mig vita ef þú kemst að einhverju. Guð blessi þig, kæri frændi, þú fyrirgefur, og vertu nú sæll.“
Hann brosti eftir að þeir kvöddust, frændi hans sá sig aldrei úr færi að tryggja honum umhyggju þeirra í efra en fannst hann samt þurfa að biðja hann afsökunar á að brjóta þetta þegjandi samkomulag þeirra. Samt hafði Smári ekkert sérstakt á móti þessum einlægu bænarorðum hans því góðar hugsanir glæða sálir og hann vissi að óskir frænda hans voru innilegar og vel meintar.
Leiðin var löng úr höfuðborginni vestur á firði og hann hafði hugsað sér að taka morgundaginn snemma. Hann fór í huganum yfir undirbúninginn. Allt var til reiðu í smíðabílnum, öll verkfæri og hluti af byggingarefninu, skrúfur, festingar og fleira sem hann hafði verið beðinn um að útvega í bænum. Hann hefði getað komið meiru fyrir í stóra jeppanum en timbrið yrði væntanlega klárt á byggingarstað. Verkefnið var ekki flókið, einföld timburgrind á steyptum grunni, á einni hæð með hárri burst og lofthæð. Hann hafði farið yfir teikningarnar að nýbyggingunni og kunni þetta út og inn, enda byggt nokkur svipuð hús. Hann skorti ekki verkefni en þegar hann heyrði hvar húsið átti að rísa gat hann ekki annað en samþykkt að taka verkið að sér. Að smíða hús þar sem langfeðgar hans fæddust og ólust upp, í breiðum dal á milli brattra fjalla þar sem lífsbaráttan mótaði hverja sál, var tækifæri sem hann gat ekki látið fram hjá sér fara.
Síðasta hugsun hans, eftir að hann lagði höfuðið á koddann, var um hvarf Lappa. Sjálfur var hann enginn sérstakur hundavinur, hafði bara alist upp með köttum en foreldrar hans höfðu verið miklir dýravinir, sérstaklega faðir hans heitinn. Örlög hundsins höfðu ásótt pabba hans síðustu æviárin og hann hafði oft rifjað söguna upp þegar Smári kíkti í heimsókn. Þeir feðgar höfðu velt ýmsum möguleikum fyrir sér en enduðu ætíð á þeim líklegasta, að eftir að hafa beðið þögull á ströndinni í marga daga, hafi hann farið á hundavaði út fjörðinn á eftir húsbónda sínum, örmagnast af kulda og drukknað.
En af hverju synti hann þá ekki strax á eftir þeim?
– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –
Tilboð fyrir iðandi bókaorma!

Fullt verð í bókabúð er norðan við sex þúsund krónur en Smári smiður er sanngjarn, vel smíðað eintak af Úti hvíslar golan á litlar 4.900 krónur ef bókin er sótt til höfundar, ef heimsent þá heimtar pósturinn 630 krónur fyrir þá þjónustu.
Sendu tölvupóst með kennitölu, nafni og heimilisfangi á netfangið ljon190409@gmail.com, taktu fram hvort þú vilt nálgast bókina hjá höfundi eða fá hana senda í pósti og og þú færð kurteisan greiðslukall í heimabanka.
Gamla bókasafnið í Bakkadal fagnar bókaþyrstum!
Þessi orð eru líka til sölu …
– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –
Segðu þína skoðun!
Uppbyggileg og málefnaleg gagnrýni á inntak texta og efnistök höfundar er vel þegin. Verið kurteis, farið í boltann en ekki manninn og sýnið virðingu, bæði höfundi og öðrum sem viðra skoðanir sínar.
Uppfært 29.09.2026 af Lárus Jón