Úti hvíslar golan Örlagasaga úr Bakkadal

Úti hvíslar golan er fjórða skáldsaga Lárusar Jóns og kom út í lok september 2026.Kort af sögusviði bókarinnar Úti hvíslar golan

Sextugur smiður tekur að sér að byggja hús í Bakkadal í Arnarfirði, átthögum föður hans og afa, þar sem allt er í yfirstærð. Himinháir og brattir núpar, svartir hangandi hamrar, grængróandi dalur og sterkgulur fjörusandur mynduðu sal þar sem hljómkviður fugla og dýra, regns og fjallalækja, snjóélja og storma ómuðu árið um kring með ljúfum hléum brakandi sólþurrks og angurværs lóukvaks um kyrrar sumarnætur.

Hann notar tækifærið til að reyna að leysa gátu um hund sem hvarf sporlaust áratugum fyrr en ófyrirséðir atburðir flækjast fyrir og jörðin geymir leyndarmál sín vel. Önugur dalbúi opnar sálu sína um bitur en sjálfsköpuð örlög sín og ástkonu sinnar, baráttu við feðraveldið og skugga fortíðar.

Þessar tvær fjalir neglast saman undir vestfirskri sumarsól og augliti suðrænna fljóða í spennandi og ljúfri fléttu með óvæntum snúningi.

Margt býr djúpum Arnarfjarðar en skrímslin finnast einnig á þurru landi. Lestu til að sannfærast.

Bakkadalur í Ketildölum Arnarfjarðar býður ykkur að koma og upplifa dýrð himins og jarðar, allt árið um kring!

– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –

Tilboð fyrir iðandi bókaorma! 

Finnskur greiðslukall © Larus Jón - einkasafn
Finnskur greiðslukall © Larus Jón – einkasafn

Fullt verð í bókabúð er norðan við sex þúsund krónur en Smári smiður er sanngjarn, vel smíðað eintak af Úti hvíslar golan á litlar 4.900 krónur ef bókin er sótt til höfundar, ef heimsent þá heimtar pósturinn 630 krónur fyrir þá þjónustu.

Sendu  tölvupóst með kennitölu, nafni og heimilisfangi á netfangið ljon190409@gmail.com, taktu fram hvort þú vilt nálgast bókina hjá höfundi eða fá hana senda í pósti og og þú færð kurteisan greiðslukall í heimabanka.

Gamla bókasafnið í Bakkadal fagnar bókaþyrstum!

Þessi orð eru líka til sölu …

– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –

Segðu þína skoðun! 

Uppbyggileg og málefnaleg gagnrýni á inntak texta og efnistök höfundar er vel þegin. Verið kurteis, farið í boltann en ekki manninn og sýnið virðingu, bæði höfundi og öðrum sem viðra skoðanir sínar.

Uppfært 29.09.2026 af Lárus Jón