
Úti hvíslar golan er fjórða skáldsaga Lárusar Jóns og kom út í byrjun september 2026. Hér er kafli úr bókinni.
Þessi dagur átti eftir að verða sá hamingjuríkasti í lífi mínu og þeir hafa ekki verið margir. Bara svo þú vitir það, væna mín, þá hefur öll mín ævi liðið í skugga þessa sumars en umræddur dagur er gimsteinninn sem enn glitrar af þeim fáu sem mér tókst að safna þessa sumarmánuði. Og veistu, ég er sáttur, ég væri til í að tóra önnur sjötíu og sjö ár í svörtu og köldu svartholi fyrir þessar fáu minningar. Ég býst ekki við að fólk á þínu reki skilji þetta, þið sem varla getið mætt mótlæti í einn dag án þess að kvarta og kveina. Fyrirgefðu, ég er farinn að rausa. Er símagræjan enn í gangi? Gott, þá held ég áfram.
Litla böggulinn sem hún gaf mér hef ég aldrei skilið við mig, aldrei. Innihaldið hefur verið mitt mesta dýrmæti, eina áþreifanlega minningin um mína fyrstu ást og líklega þá síðustu. Fjóla ljómaði öll þegar hún sá svipinn á mér eftir við höfðum vafið utan af þessum dýrgripum. Hún sagði að andlit mitt hefði breyst, niðurdregnu munnvikin hefðu lyfst upp, hægt og titrandi, augun hefðu stækkað og einhver birta, sem hún hafði aldrei áður séð, stafaði ekki bara úr augum mér heldur frá mér öllum. Þú hreinlega lýstist upp eins og rosabaugur um sólu sagði hún. Ég þreif hana í fangið og við kysstumst, ekki svona kurteislegum komdu-nú-sæl-kossi heldur eins og þegar hamri er slegið á glóandi járn á köldum steðja, það sindraði fyrir augum mér og neistarnir kveiktu í öllum þessum uppþornuðu vonbrigðakvistum í sálu minni og líkami minn brann í heitum loga sem magnaðist við hvern koss og hverja snertingu þar sem við lágum klæðlítil og samantvinnuð í litlu lautinni við grjótgarðinn. Hún var jafn áköf og ég og um leið jafn reynslulítil en einhvern veginn enduðum við á þeim stað sem öll ástfangin pör leita og unaðurinn var nánast óbærilegur. Ég hef legið úti um vetrarnótt á snjólausri grund á nýju tungli og baðað mig í bragandi norðurljósum og leiftrandi stjörnuskini en þessi fyrsta stund mín í anddyri ástarinnar tók því öllu fram. Ég stakkst á kaf eins og sleginn nagli í grænan við, sundraðist eins og mölvuð rúða og leystist upp í læðing. Ég var ekki lengur. Ég hvarf í hlýtt myrkur sem umvafði mig og strauk burt tárin sem runnu niður kinnar mínar eins og fjallalækir í asahláku. Og þegar ég komst til sjálfs mín horfði ég í þessi grænu augu, grænni en nokkur dýjamosi á röku sumri, full af ást og hlýju og ég lagði höfuð mitt á barm hennar og hún breiddi yfir okkur gamla frakkann minn og vafði mig örmum.
Við höfum líklega sofið um stund því okkur var orðið kalt þegar við rumskuðum. Það gustaði af hafi og þegar við settumst upp urðum við bæði dálítið vandræðaleg, hálfnakin með úfið hár. Við klæddum okkur þegjandi en vorum alltaf að gjóa augunum hvort á annað og loks gátum við ekki hamið okkur og fórum að hlæja. Fullklædd lögðumst við aftur og héldumst í hendur. Ég man ekki hvað við sögðum en það voru bólgin orð um framtíðina, dýr loforð um tilfinningar og þetta ósagða sem sveimar í kringum mann eins og svifhár af biðukollu, orð sem þurfti að segja en myndu spilla því þrungna andrúmslofti sem við drógum að okkur líkt og kafnandi maður undir snjófargi. Stundum þarf engin orð og þegar við gengum vestur götuslóðann að Bakkahlíðinni héldumst við í hendur og kenndirnar streymdu á milli okkar. Fingurgómar eru næmir og líkt og efnahvörf hvetjast við yl þá lásum við í lófa hvort annars með þéttu handtaki og fléttuðum fingrum.
Við staðnæmdumst skammt frá leitinu í Bakkahlíðinni. Ég þurfti að setjast og við fórum spölkorn upp í hlíðina fyrir ofan slóðann og settumst í grunna bollann undir stóra bjarginu sem ísaldarjökullinn hafði skyrpt út úr sér í árdaga þegar hann hopaði. Hún sneri sér að mér. Ég vissi hvers hún ætlaði að spyrja og fann loksins styrkinn til að segja frá. Hún tók um hendur mínar og kyssti tárin sem voru byrjuð að renna niður vangana. Ég hafði aldrei talað um þetta við nokkurn mann og þurfti að kyngja nokkrum sinnum og ræskja mig áður en ég gat byrjað.
Bróðir minn var ári eldri en ég. Við vorum andstæður, ég viðkvæmur og inn í mig meðan hann stóð keikur og bauð öllu byrginn. Samt skynjaði ég sjálfsefa því hann hafði sífellt þörf fyrir að sigra og hvern var auðveldara að vinna en litla bróður? Hann sneri öllu upp í keppni, til dæmis hvor yrði á undan að klæða sig í skóna, hvor yrði fljótari að hlaupa að kúnum til að reka þær inn í fjós til mjalta, hvor næði að binda fleiri beljur á bás og hvor okkar gæti skolað fleiri mjólkurskjólur í læknum ofan við bæinn. Hann vann auðvitað alltaf, til þess var leikurinn gerður. Þessi keppnislund ól upp í honum fílfdirfsku sem foreldrar mínir gerðu lítið til að hemja því þau sáu í honum verðandi stórbónda sem myndi sigrast á öllu sem hann tækist á við. Hann varð augasteinn þeirra og heilagur arftaki föður okkar og fékk allt fyrst, graut á diskinn, hreint á rúmið, ný stígvél, dagblöðin strax eftir að faðir okkar hafði lokið við að lesa þau og faðmlög móður okkar. Ég stóð í skugga hans og mátti hirða leifarnar.
Haustið sem hann varð átján ára komu kaupmannshjón frá Patreksfirði í heimsókn á heimili okkar. Foreldrar mínir höfðu boðið þeim til að ræða framtíð bróður míns. Kaupmannshjónin áttu dóttur og voru að leita að heppilegum eiginmanni handa henni, helst einhverjum sem myndi erfa land og ætti framtíð sem mætur bóndi. Móðir mín og kaupmannsfrúin voru þremenningar og þessi ráðahagur þótti góður kostur því þótt jörðin væri ekki kostarík var hún sú stærsta í dalnum. Foreldrar mínir ráku myndarbú, með þremur vinnumönnum og voru mátulega stöndug. Land er undirstaða lífs og jarðeigandi sem jafnframt væri kaupmaður kæmi alltaf standandi niður. Bróðir minn var ekkert sérlega upprifinn en þegar hann sá vangamynd af stúlkunni sættist hann á þetta samkomulag og ákveðið var að þau myndu giftast vorið eftir. Þarna hafði bróðir minn sigrað enn og aftur því engar áætlanir voru um að finna mér konuefni.
Haustið leið og í desember vorum við bræðurnir sendir vestur í Fífustaðadal til að fá lánaðan hrút því föður mínum þótti nauðsynlegt að skipta þeim gamla út fyrir nýtt blóð til að forðast innræktun fjárins. Veður var gott, snjólétt á undirlendi en skaflar í hlíðum. Við vorum fljótir til bóndans í Fífustaðadal, vegslóðinn var að mestu snjólaus og von bráðar vorum við lagðir af stað til baka með styggan hrútinn í bandi. Skammt frá leitinu í Bakkahlíð var langur skafl sem náði frá klettastálinu ofar í hlíðinni niður að hömrunum ofan við fjörugrjótið. Bróðir minn sá þarna kjörið tækifæri til keppni og manaði mig til að renna mér fótskriðu niður skaflinn eins langt og ég þyrði. Að fenginni reynslu vissi ég að ekki dugði að segja nei, best væri að láta undan til að lina þennan keppniskláða svo honum liði betur eftir að hafa unnið mig og við yrðum fljótari heim. Ég rétti honum hrútstauminn og klöngraðist nokkurn spöl upp í hlíðina og lagðist í skaflinn og lét mig renna með fæturna á undan. Mér til skelfingar fann ég að það sem okkur fannst vera skafl var einungis þunnt og lausbundið snjólag á hörðum klaka og ég missti alla stjórn og brunaði beinustu leið niður að sjávarhömrunum. Í einhverju fáti tókst mér að velta mér á magann, spyrna við tám og stýra mér út af klakarennunni og nam staðar um tíu metrum ofan við hamrana. Ég var miður mín af skelfingu og þorði vart að hreyfa mig en bróðir minn var óðar kominn til mín, dró mig á fætur og rétti mér tauminn. Ég staulaðist skjálfandi fótum upp hlíðina að vegslóðanum og reyndi að segja bróður mínum af hættunni en kom ekki upp orði. Alla tíð síðan hef ég velt fyrir mér hvort það hafi verið óviljandi eða hvort einhver innri púki hafi tekið völdin og séð sér leik á borði til að sigra loksins þennan keppnisglaða bróður minn. Bróður sem alltaf stóð breiður fyrir kærleiksgeislum foreldra minna og skildi mig eftir í köldum skugganum. En það hefði líklega ekki skipt máli, hann var kominn í ham.
Hann skyldi sko renna sér hraðar og lengra en ég.
– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –
Tilboð fyrir iðandi bókaorma!

Fullt verð í bókabúð er norðan við sex þúsund krónur en Smári smiður er sanngjarn, vel smíðað eintak af Úti hvíslar golan á litlar 4.900 krónur ef bókin er sótt til höfundar, ef heimsent þá heimtar pósturinn 630 krónur fyrir þá þjónustu.
Sendu tölvupóst með kennitölu, nafni og heimilisfangi á netfangið ljon190409@gmail.com, taktu fram hvort þú vilt nálgast bókina hjá höfundi eða fá hana senda í pósti og og þú færð kurteisan greiðslukall í heimabanka.
Gamla bókasafnið í Bakkadal fagnar bókaþyrstum!
Þessi orð eru líka til sölu …
– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –
Segðu þína skoðun!
Uppbyggileg og málefnaleg gagnrýni á inntak texta og efnistök höfundar er vel þegin. Verið kurteis, farið í boltann en ekki manninn og sýnið virðingu, bæði höfundi og öðrum sem viðra skoðanir sínar.
Uppfært 29.09.2026 af Lárus Jón