Í Lárusarhúsi er ró og friður. Þögnin uppljómast. Kvæði frá 2010.
Uppljómunin
Klukkuna vantaði, stolin var stundin,
stirður ég gekk út og aðgætti tíma,
í eilífðarskiptið ég svaraði síma,
– á sandölum stóð hún, það titraði grundin.
Ég lét frá mér töskuna, töpuð var gríma,
og tyllti mér forviða niður á grasið.
Það var eitthvað við hana, frjálslega fasið
og frísklegur hlátur sem var eins og víma.
Umferðarniðurinn, argið og þrasið,
með öllu var hljóðnaður, þagnað og búið
og skjótar en lykli í skrá væri snúið,
ég skildi hvað þarf til að fylla á glasið:
Því hvort sem þið efist og hvort sem þið trúið,
er hamingjan fólgin í því sem er Núið!

– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –
Tilboð fyrir forvitna bókaorma!

Í Lárusarhúsi er fyrsta ljóðabók Lárusar Jóns og innheldur þau prenthæfu ljóð og kvæði sem fylltu skúffuna frægu. Hér kennir margra grasa og misgrænna en þau eru einlægur lítill ljóri í sálarlíf höfundar.
Ykkur býðst heilt Lárusarhús á litlar 2.900 krónur ef bókin er sótt til höfundar, ef heimsent þá heimtar pósturinn 630 krónur fyrir þá þjónustu.
Sendu tölvupóst með kennitölu, nafni og heimilisfangi á netfangið ljon190409@gmail.com, taktu fram hvort þú vilt nálgast bókina hjá höfundi eða fá hana senda í pósti og og þú færð kurteisan greiðslukall í heimabanka.
Höndlist af varúð og tillitsemi gagnvart viðkæmum höfundi. Njótið vel.
Þessi orð eru líka til sölu …
– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –
Segðu þína skoðun!
Uppbyggileg og málefnaleg gagnrýni á inntak texta og efnistök höfundar er vel þegin. Verið kurteis, farið í boltann en ekki manninn og sýnið virðingu, bæði höfundi og öðrum sem viðra skoðanir sínar.
Uppfært 04.09.2025 af Lárus Jón