Í Lárusarhúsi ríkir friður meðan veröldin hefur borist á banaspjót um aldir. Rauði krossinn var stofnaður í kjölfar slátrunarinnar í Solferino á Norður-Ítalíu 1859. Kvæðið er frá 2002, ort eftir heimsókn í beinakirkjuna í Solferino.
Solferino 1859
Sigurreifur valsar hann um valinn,
– viti firrtur liggur undir kesti,
skynjar meir en heyrir dyn af hesti.
Hörkulegur eygir rjóðan valinn.
Mundar stinginn stríðs á hjarta kalinn,
– stjörfum augum, rís á hnén, án orða
gengur fram, þar glitrar sól á korða –
greinir einn í viðbót sem var falinn.
Keyrir hestinn, hrollur fer um dalinn,
– heyra má á skýru alheimsmáli
þögult öskur, hvísl í hvössu stáli –
hetja dagsins síðar verður talinn.
Varstu til þess uppfræddur og alinn
eins að falla höfuðlaus í valinn?

– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –
Tilboð fyrir forvitna bókaorma!

Í Lárusarhúsi er fyrsta ljóðabók Lárusar Jóns og innheldur þau prenthæfu ljóð og kvæði sem fylltu skúffuna frægu. Hér kennir margra grasa og misgrænna en þau eru einlægur lítill ljóri í sálarlíf höfundar.
Ykkur býðst heilt Lárusarhús á litlar 2.900 krónur ef bókin er sótt til höfundar, ef heimsent þá heimtar pósturinn 630 krónur fyrir þá þjónustu.
Sendu tölvupóst með kennitölu, nafni og heimilisfangi á netfangið ljon190409@gmail.com, taktu fram hvort þú vilt nálgast bókina hjá höfundi eða fá hana senda í pósti og og þú færð kurteisan greiðslukall í heimabanka.
Höndlist af varúð og tillitsemi gagnvart viðkæmum höfundi. Njótið vel.
Þessi orð eru líka til sölu …
– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –
Segðu þína skoðun!
Uppbyggileg og málefnaleg gagnrýni á inntak texta og efnistök höfundar er vel þegin. Verið kurteis, farið í boltann en ekki manninn og sýnið virðingu, bæði höfundi og öðrum sem viðra skoðanir sínar.
Uppfært 07.09.2025 af Lárus Jón