Flekaskil kom út 2018. Hún er önnur ljóðabók Lárusar Jóns.
Hér eru tvö ljóð úr öðrum hluta bókarinnar:

Grafíkmynd: Undir jökli. Þurrnál og vatnslitir. Hluti myndar.
Hrúður
Hrúður á sárri kviku
Þunn skel sem harðnar
hægt en örugglega
Af einhverjum sökum
er mér fróun í því
að kroppa í hrúðrið
víkka sárið
sem opnast
á flekaskilum
– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –
Rof
Ókleifur hamarinn
mylur
ár eftir ár
Andardráttur aldanna
Úr lófa mér
rennur sandur
tímans
– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –
Tilboð fyrir jökulkalda bókaorma!

Flekaskil eða nokkrar hugleiðingar út frá jarðfræði og kenningum Alfreds Wegeners sem hvílir frosinn á miðjum aldri djúpt í Grænlandsjökli, er spegill sem höfundur horfði nauðugur í, nokkuð sem miðaldra mönnum er hollt að gera fyrr en síðar. Það andar köldu af hverri síðu en um leið er ylur í orðum sem hitta beint í hjartastað.
Unnendum miðaldra karla býðst eintakið á svalar 2.900 krónur ef bókin er sótt til höfundar, ef heimsent þá heimtar pósturinn 630 krónur fyrir þá þjónustu.
Sendu tölvupóst með kennitölu, nafni og heimilisfangi á netfangið ljon190409@gmail.com, taktu fram hvort þú vilt nálgast bókina hjá höfundi eða fá hana senda í pósti og og þú færð kurteisan greiðslukall í heimabanka.
Ekki stinga bókinni í frystinn, hún geymist vel við stofuhita. Njótið með góðgæti í glasi og nálægt hlýju holdi.
Þessi orð eru líka til sölu …
– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –
Segðu þína skoðun!
Uppbyggileg og málefnaleg gagnrýni á inntak texta og efnistök höfundar er vel þegin. Verið kurteis, farið í boltann en ekki manninn og sýnið virðingu, bæði höfundi og öðrum sem viðra skoðanir sínar.
Uppfært 02.09.2025 af Lárus Jón