Af ævi og örlögum Jónatans jeminn

© 2007 Aðalheiður Ólöf Skarphéðinsdóttir. Einþrykk. Þurrnál og vatnslitir. Heiti: Sögustund.
© 2007 Aðalheiður Ólöf Skarphéðinsdóttir. Einþrykk. Þurrnál og vatnslitir. Heiti: Sögustund.

Gröfurum ratast margt á munn og hér að neðan er stutt yfirlit sagna og slúðurs um alla þá sem þekktu, eða þekktu ekki, Jónatan jeminn:

  • Af eiturgrænum skóm með oddmjórri tá
  • Af kynnum Ungfrúar Gunnhildar af Gvendi þjófi og skilningi kvenna á heimspeki
  • Af Rósinni svörtu, einfættri móður hennar og Sólmundi sótara
  • Af stærðfræðiprófessornum Kristófer kúmen og yfirgengilegri góðmennsku hans
  • Af uppvexti Jónatans jeminn og skilningi hans á valdajafnvægi lífsins
  • Af handstyrk Jónatans, Hildigunni og því að allar orsakir hafa afleiðingar
  • Af óvæntri og dularfullri heimkomu Hildigunnar og logandi steinolíulampa
  • Af fallegustu jöfnu Kristófers kúmen og lifandi dauða hans
  • Af fagurblámaða Bing & Gröndahl mávastellinu og bankastjórafélagsverkfæraskúrnum
  • Af Fröken Ólafíu og grafalvarlegu uppeldi hennar
  • Af greifafrú Olive deGris og ánægjulegri upprisu holdsins
  • Af Jens, einkasyni ráðherrahvíslarans með varnarliðshamarinn
  • Af Ciaran MacCarron, uppljómun hans og dásamlegum ótuktarskap
  • Af ráðsnilld Soffíu MacCarron og tungumálafimi Jónatans jeminn
  • Af húsfélagsfundum á Hólsgötu þrjátíu og tvö og rauðvínsflöskum sem þola hnjask
  • Af ráðlögðum næturskammti grænmetis, rauðu pungbindi og höfuðverkjum
  • Af Georg, óþvegnum vinnusloppi og nýstárlegum herrailmi
  • Af getnaði Frú Ágústu, frábærlega óþverralegum kafbátaskipstjórum og pólskum kokki
  • Af SUKSSESS Frú Ágústu og lævísi Jónatans jemins
  • Af útsaumuðum biblíumyndum og ilmandi freyðiböðum
  • Af Syndafallinu og hinum alvitra Dr. S
  • Af gagnkvæmu klóri á réttum stöðum og hengilkinnum prestahvíslarans
  • Af seigdrepandi móðurlegri umhyggju og ástarlífi Halldórs prestlings
  • Af veðurfræðingum og handsterkum forstjórum líftæknifyrirtækja
  • Af Bjössa bús, heilögum getnaði og gróskumiklu blómskrúði
  • Af nærbuxnaskandalnum og viðskiptum Björns skipstjóra við berjatínslumenn
  • Af austfjarðaþokunni, samanbrotna faktornum og þingmannsþunnildinu
  • Af Júrí, með joði, úi og íi og Jósef sem missti mömmu sína tvisvar
  • Af brundþrá og almennri angist ástfangins skólapilts
  • Af sleipri sápu og ólympskri brotlendingu á bjórkassa
  • Af Arndísi, álfakroppnum mjóa, leynisprittsölu og rafmagnsmælaaflesara
  • Af játningu sápusendilsins, meintum vinsældum Jónatans jeminn og afhjúpun grafarans

Jónatan jeminn er nýjasta bók Lárusar Jóns og kemur út í byrjun september 2025.

Kort á innsíðum kápu er útfært af höfundi og byggt á gjaldfrjálsum kortagrunni Landmælinga Íslands (www.atlas.lmi.is) og korti úr safni Wikimedia (https://commons.wikimedia.org).
Kort á innsíðum kápu er útfært af höfundi og byggt á gjaldfrjálsum kortagrunni Landmælinga Íslands (www.atlas.lmi.is) og korti úr safni Wikimedia (https://commons.wikimedia.org).

– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –

Tilboð fyrir iðandi bókaorma! 

Finnskur greiðslukall © Larus Jón - einkasafn
Finnskur greiðslukall © Larus Jón – einkasafn

Fullt verð í bókabúð er norðan við sex þúsund krónur en Dr. S færir yður fögnuð: Áfengt eintak af Jónatani jeminn á litlar 4.700 krónur ef bókin er sótt til höfundar, ef heimsent þá heimtar pósturinn 630 krónur fyrir þá þjónustu.

Sendu  tölvupóst með kennitölu, nafni og heimilisfangi á netfangið ljon190409@gmail.com, taktu fram hvort þú vilt nálgast bókina hjá höfundi eða fá hana senda í pósti og og þú færð kurteisan greiðslukall í heimabanka.

Jónatan fagnar bókaþyrstum!

Þessi orð eru líka til sölu …

– o – o – o – o – o – o – o – o – o – o – o –

Segðu þína skoðun! 

Uppbyggileg og málefnaleg gagnrýni á inntak texta og efnistök höfundar er vel þegin. Verið kurteis, farið í boltann en ekki manninn og sýnið virðingu, bæði höfundi og öðrum sem viðra skoðanir sínar.

Uppfært 04.09.2025 af Lárus Jón